Fréttir

19. október 2000

Kárahnjúkavirkjun

Almenna verkfræðistofan hf. vinnur nú að endurskoðun verkhönnunar Kárahnjúkavirkjunar ásamt Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. (verkefnisstjórn), Rafteikningu hf., Eloctrowatt í Sviss og Palmi Associates frá Bandaríkjunum.

Þyrla var notuð tl að flytja starfsmenn AV til afskektustu hluta Hraunaveitu.
 
Verkefni AV er einkum fólgið í hönnun og útboðsgagnagerð Hraunaveitu ásamt hönnun stíflu í Jökulsá í Fljótdal og vesturstíflu við Kárahnjúka. Hraunaveitu er ætlað að safna vatni úr ám á svonefndum Hraunum sunnan Eyjabakka og veita því til Jökulsár í Fljótsdal. Frá Jökulsárstíflu rétt neðan við Eyjabakkafoss yrði vatninu veitt í jarðgöngum er sameinast jarðgöngum frá Kárahnjúkum.

Í sumar hefur einkum verið unnið við vatnafræði-, jarðtækni- og jarðfræðirannsóknir. Auk þess var unnið við byggingarefnisleit og vali á mannvirkjastæðum, en unnið verður úr gögnum í haust og fram eftir vetri.

Gert er ráð fyrir að árið 2001 verði unnið við útboðsgögn en þá er miðað við að virkjunin verði komin í gagnið 2006.