Fréttir

31. október 2008

Hringvegur á Kjalarnesi - Frumdrög

Í maí sl. fól Vegagerðin Almennu verkfræðistofunni að ljúka við gerð frumdraga að Hringvegi (Vesturlands-vegi) á Kjalarnesi milli Kollafjarðar og Hvalfjarðarganga. Um er að ræða breikkun vegarins úr tveimur akreinum í fjórar með mislægum vegamótum eingöngu. Til grundvallar var lagður valkostur 2 úr fyrri frumdrögum, sem unnin voru af VSÓ ráðgjöf og gefin út í janúar 2007 undir nafninu „Hringvegur á Kjalarnesi, Frumdrög, áfangaskýrsla“.

Gert er ráð fyrir þrennum vegamótum, einum sunnan við Esjuberg, öðrum við Grundarhverfi og þeim þriðju við Hvalfjarðarveg. Verkefnið felst einnig í að gera frumdrög að tengivegum, sem verða lagðir á jaðri veghelgunarsvæðis. Hlutverk tengiveganna er auka umferðaröryggi og bæta umferðarflæði á Hringvegi með því að fækka tengingum við núverandi veg. 
Gerð verður grein fyrir mögulegum áfangaskiptum og könnuð hagkvæmni við gerð bráðabirgðavegamóta áður en til breikkunar vegarins kemur.  Verkefnið er unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg og áætlað er að því ljúki rétt fyrir næstu áramót.