Fréttir
20. nóvember 2008
Hreinsun og uppbygging á Keflavíkurflugvelli
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. var stofnað af ríkinu árið 2006 til að leiða þróun og umbreytingu á þeim svæðum sem áður tilheyrðu Varnarliðinu og koma þeim í borgaraleg not. Í því felst meðal annars að kanna umfang mengunar á svæðunum og láta hreinsa þau ef með þarf.Þróunarfélagið fékk Almennu verkfræðistofuna í lið með sér og hefur stofan kannað grunnvatn og jarðefni á afmörkuðum svæðum.
Í framhaldi af því var Almennu verkfræðistofunni falið að bjóða út hreinsun á lóð fyrrverandi Umsýslustofnunar varnarmála og flutning mengaðs jarðvegs, að höfðu samráði við Umhverfisstofnun, ýmist til hreinsunar eða förgunar erlendis.
almenna.is