Fréttir

02. nóvember 2009

Hraunavík

Síðasta skrefið í hreinsun strandlengjunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur nú verið stigið. 12. september síðastliðinn var ný hreinsistöð fyrir fráveituvatn tekin í notkun í Hafnarfirði, nákvæmlega fjórum árum eftir að hönnun hennar hófst. Hreinsistöðinni var gefið nafnið Hraunavík við hátíðlega opnunarathöfn þar sem forstjóri Ístaks afhenti bæjarstjóra Hafnarfjarðar mannvirkið. Fráveita Hafnarfjarðar hefur jafnframt fengið fullgilt leyfi til þess að starfrækja fráveitukerfi og hreinsistöð fyrir Hafnarfjarðarbæ samkvæmt gildandi lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Heildarkostnaður við hreinsistöðina sjálfa var 1.400 milljónir kr, en útræsi frá henni kostaði 860 milljónir. Heildarkostnaður við framkvæmdir vegna endurbóta á fráveitukerfi Hafnarfjarðar er 4.900 milljónir kr.

Sami hönnunarhópur hefur hannað þær þrjár hreinsistöðvar sem reistar hafa verið á höfuðborgarsvæðinu og jafnframt þrjár hreinsistöðvar sem eru að rísa á Akranesi, Borgarnesi og Kjalarnesi. Arkitektar Gunnar og Reynir hafa annast arkitektahönnun, Almenna verkfræðistofan hefur annast hönnunarstjórn og verkfræðihönnun fyrir utan raflagnahönnun, sem var unnin af Rafhönnun. Það má því segja að hópurinn hafi tekið verulegan þátt í stórkostlegu umhverfisátaki á suðvesturhorni landsins þar sem stór hluti þjóðarinnar býr. Við hönnun og byggingu mannvirkja hefur verið leitast við að gera þau þannig úr garði að þau falli sem best að umhverfinu og þannig að rekstur og umhirða verði sem auðveldust.

 

Hraunavík dælu- og hreinsistöð er sömu gerðar og starfræktar eru í Reykjavík, enda eru aðstæður sambærilegar. Fráveituvatnið er hreinsað bæði með síubúnaði og í skiljuþró, en síðan er því dælt út í sjó um 2 km langt útræsi. Náttúran sjálf annast þar niðurbrot á úrgangsefnum í fráveituvatninu, sem ekki eru skilin frá í hreinsistöðinni. Við undirbúning á hönnun mannvirkja var gert tölvulíkan af áætluðu útstreymi fráveituvatns í sjóinn utan við hreinsistöðina og dreifingu þess í sjónum. Niðurstöður úr þeim reikningum sýna að kólígerlar við strönd verða innan við leyfileg mörk fyrir síður viðkvæman viðtaka.

 

Í starfsleyfi fyrir Fráveitu Hafnarfjarðar eru sett sértæk skilyrði vegna vöktunar á virkni hreinsistöðvarinnar, vegna vöktunar á losun efna í sjóinn og vegna virkni dreifingar í sjónum. Til þess að uppfylla þessi skilyrði þá er stöðug mæling og skráning á rennsli fráveituvatns í gegnum hreinsistöðina, vigtun á magni úrgangs frá stöðinni og sýnataka úr fráveituvatni sem losað er í sjó. Jafnframt þarf reglulega að taka sýni úr sjónum bæði við mörk þynningarsvæðis og við strönd. Stöðug vöktun verður einnig á því hvort og hvað lengi rennsli verði um yfirföll í fráveitukerfi Hafnarfjarðar framhjá hreinsistöðinni.

 

Ísland hefur umtalsverða sérstöðu vegna sterkra hafstrauma umhverfis landið. Dreifing á efnum sem losuð eru í sjóinn með fráveituvatni er því hröð. Við Hraunsvík streymir auk þess mikið ferskvatn undan hrauninu út sjóinn, sem flýtir ennþá meira fyrir blöndun og

dreifingu. Rannsóknir hafa verið gerðar í mörg ár á breytingum á lífríki, aðallega skelfiskum, og setmyndun á botni sjávar úti fyrir hreinsistöðvum í Reykjavík. Í ljós hefur komið að breytingar þar eru óverulegar af völdum fráveituvatns sem þar er veitt út.