Fréttir

06. nóvember 2006

Heilsumiðstöð World Class

World Class vinnur nú að undirbúningi að opnun á einni heilsuræktinni til viðbótar á höfuðborgarsvæðinu, að þessu sinni viðbyggingu við Sundlaugina á  Seltjarnarnesi.  Byggingin verður á tveimur hæðum. Kjallarinn verður steinsteyptur á hefðbundinn hátt, en yfirbyggingin verður að mestu úr stáli og gleri.
Í kjallara verður baðhús ásamt búningsaðstöðu, júdósalur, þvottahús og tæknirými auk rýma sem ætluð eru til útleigu. Á efri hæð verður um 500 m2 tækjasalur og um 140 m2 leikfimisalur.   Hönnuðir eru þeir sömu og komu að byggingu heilsumiðstöðvarinnar í Laugardal.
Helstu kennistærðir eru:  Heildarrúmmál: 5.580 m3.  Heildarflatarmál: 1.409 m2.
Almenna verkfræðistofan sér um hönnun loftræsikerfa í byggingunni.  Arkitektar eru Funkis ehf.
Ráðgert er að hönnun ljúki í lok þessa árs og að heilsumiðstöðin verði opnuð í okt. 2007.