Fréttir
Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar
Árið 2004 var hafin vinna við hönnun viðbyggingar og lagfæringar á húsnæði Heilbrigðisstofnunarinnar Siglufirði að Hvanneyrarbraut 37 Siglufirði.
Verkframkvæmdinni var skipt upp í þrjá áfanga.
1. áfangi - Breytingar á eldra húsi I, þ.e. byrjað á aðkallandi breytingum og endurbótum.
2. áfangi - Ný viðbygging. Fullbúið hús og frágengin lóð.
3. áfangi - Breytingar á eldra húsi II, þ.e. endurbætur og breytingar fullkláraðar.
Helgi Hafliðason arkitekt hefur haft umsjón með verkinu fyrir Framkvæmdasýslu ríkisins og Heilbrigðisráðuneytið. Helgi leitaði eftir samstarfi við Almennu verkfræðistofuna hf. við burðarþolshönnun við vinnu 1. áfanga, en þeim áfanga er nú að mestu lokið.
Nú er unnið að hönnun 2. áfanga þar sem Almenna verkfræðistofan hf. er með burðarþolshönnun.
Viðbyggingin, teiknuð af Helga Hafliðasyni, er tveggja hæða staðsteypt hús, einangrað og klætt utan með málmklæðningu, samtals 964 m2, en í því verða: skrifstofur, skoðunarstofur lækna, setustofur, matstofur, almennar stofur og ýmis þjónusturými fyrir bæði nýbygginguna og eldra hús. Einnig verður bílgeymsla fyrir sjúkrabíl stofnunarinnar byggð áföst núverandi húsi.
almenna.is