Fréttir

31. maí 2000

Húsnæðisþörf grunnskóla Garðabæjar

Síðastliðið haust var AV falið af bæjarstjórn Garðabæjar að gera mat á húsnæðisþörf grunnskóla Garðabæjar til ársins 2020. Nú er því mati lokið og gefin hefur verið út skýrsla er skýrir frá niðurstöðum þeirra athugana. Matið byggir annars vegar á íbúaspá til ársins 2015 í samræmi við gildandi aðalskipulag bæjarins og hins vegar á svonefndri hverfaspá en hún byggir á tölvulíkani sem áætlar barnafjölda í hverju hverfi bæjarins út frá fjölda íbúða og aldri viðkomandi hverfis.

Hverfaspáin hefur einkum þann tilgang að áætla börn á skólaaldri í einstökum hverfum til að geta metið álag á hvern skóla fyrir sig, en er jafnframt handhægt tæki til að meta áhrif af mismunandi uppbyggingarkostum bæjarins á húsnæðisþörf einstakra skóla í náinni framtíð.