Fréttir
Grundartangi - Ofnstopp ofn III
Verkið fólst í því að endurnýja stærsta ofn Elkem að Grundartanga ásamt skorsteinum ofnsins. Almenna sá um þann hluta verksins sem snýr að skorsteinunum.
Hönnunin var að mestu í höndum Elkem í Noregi. Hluti hennar fór samt fram hér á Almennu. Átta verktökum var boðið að bjóða í verkið, helmingur þeirra frá Noregi og helmingur héðan. Eftir að tilboðin bárust var fundað með hverjum og einum verktaka til þess að tryggja að hann hefði skilið alla skilmála verksins og áttað sig á flækjustigi þess.
Sérstök áhersla var lögð á öryggismál í þessu verki og var ráðinn tímabundið sérstakur öryggisfulltrúi sem var í fullu starfi við að fylgjast með öryggismálum. Stór hluti af undirbúningsvinnu Almennu verkfræðistofunnar var að áhættugreina verkið og skipta því niður í þætti. Fyrir hvern verkþátt var svo útbúin áhættu-greining. Þetta eru nýjar áherslur hjá Elkem Íslandi og var þetta verkefni notað til að innleiða ný vinnubrögð hjá fyrirtækinu og stendur til að halda þessu vinnulagi fyrir öll verk í verksmiðjunni.
Hingað til hefur verkefnum af þessari stærðargráðu verið stýrt af erlendum sérfræðingum Elkem, nú í fyrsta skipti var það ekki gert. Verkefnastjórinn var íslenskur starfsmaður Elkem og hann hafði íslenska tæknimenn sér til aðstoðar.
Fyrir stærstu og áhættumestu verkþætti þurfti verktaki að skila inn verklýsingu sem lýsti því hvernig hann hygðist standa að verki þannig að öryggis væri gætt og gæði verksins væru ásættanleg fyrir verkkaupa.
Áður en verktaki mátti hefjast handa við sérhvern verkþátt, stóran sem smáan, þurfti sá mannskapur sem vinna átti verkið að framkvæma áhættumat, þar sem farið var yfir allt verklag til að meta áhættuþætti vegna öryggismála. Þar þurftu menn sjálfir að lýsa því hvernig þeir hygðust standa að verkinu til að lágmarka líkur á slysum og afleiðingar þeirra.
Við endurnýjun skorsteina var sú breyting gerð að efsti hluti skorsteina er borinn uppi af þakinu í stað þess að standa á skorsteininum sjálfum eins og áður. Því þurfti að fara í miklar styrkingar á burðarvirki hússins, bæði inni í húsinu, í þakinu og eins á stálgrind sem er ofan á þakinu sjálfu. Samhliða þessu voru nýir skorsteinar smíðaðir. Nýju skor- steinunum var svo komið fyrir þegar þeir voru tilbúnir. Almenna hafði umsjón og eftirlit með þessum framkvæmdum. Prófanir á öllum búnaði þurftu að fara fram og allt þurfti að virka rétt áður en ofninn var settur í gang. Það tókst á tilsettum tíma með samstilltu átaki.
Þegar nokkuð var liðið á verkið komu menn auga á þann möguleika að stytta verktímann. Sá tími sem ofninn er ekki í gangi er mjög dýr og því var til mikils að vinna. Það tókst að flýta verklokum um eina viku án þess að til neinna alvarlegra slysa kæmi. Báðum þessum atriðum má þakka, a.m.k. að hluta, þeirri undirbúningsvinnu sem verkkaupinn lét framkvæma. Slíkt margborgar sig.
almenna.is