Fréttir

31. október 2006

Gatnagerð á Tungumelum í Mosfellsbæ

Fyrsta skóflustungan að gatnagerð í nýju iðnaðarhverfi á Tungumelum í Mosfellsbæ var tekin í dag, 31. okt 2006.
Almenna verkfræðistofan hefur séð um alla hönnun í hverfinu, þ.e. hönnun gatna, frárennsli, regnvatn, vatnsveita, hitaveita og gerð lóða og mæliblaða.
Ístak hf. er eigandi landsins og öll hönnun er unnin fyrir þá.
Ístak sér einnig um allar framkvæmdir á svæðinu og selur síðan byggingarrétt og mannvirki á lóðunum.
Þegar framkvæmdum er lokið verður Mosfellsbær eigandi að öllu landinu, bæði því sem fer undir götur og opin svæði, en einnig að öllum lóðunum.
Húseigendur munu þá borga lóðaleigu til Mosfellsbæja.