Fréttir

11. september 2002

Garðaskóli Garðabæ

Ný viðbygging við Garðaskóla í Garðabæ hefur verið tekin notkun og var hún formlega afhent 26.08.02. Viðbygging er alls um 600m² og hýsir hún fjórar nýjar skólastofur og fjögur minni rými. Framkvæmdatími viðbyggingarinnar er rúmt ár en hafist var handa við framkvæmdir í júní 2001. Áætlaður kostnaður við viðbygginguna er 125 milljónir króna. Almenna verkfræðistofan sá um hönnun burðarþols, lagna og loftræsingar. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu Garðabæjar.