Fréttir

25. ágúst 2010

Framkvæmdir við Egilshöll ganga vel

Almenna verkfræðistofan sér um útboð og umsjón með framkvæmdum við frágang Í Egilshöll. Verið er að innrétta SV bygginguna sem á að hýsa fjóra kvikmyndasali á efri hæð og mögulega keilusali eða aðra álíka starfsemi  á neðri hæð.

Framkvæmdir hófust eftir áramótin og er áætlað að ljúka anddyri og kvikmyndasölum í lok þessa árs.