Fréttir
Framkvæmdastjóra skipti hjá Almennu verkfræðistofunni hf.
Magnús Magnússon verkfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Almennu verkfræðistofunnar hf. frá og með 1. september 2002. Fráfarandi framkvæmdastjóri Pétur Stefánsson verkfræðingur einn af stofnendum Almennu verkfræðistofunnar hefur starfað hjá fyrirtækinu óslitið frá stofnun þess 1971. Hann mun starfa áfram hjá félaginu, einkum við verkefnisstjórn og áætlanagerð.
Magnús er 48 ára og með viðamikla reynslu í atvinnulífinu bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni við framkvæmdastjórn og ráðgjöf. Síðast sem meðeigandi og rekstrarráðgjafi hjá Deloitte & Touche Ráðgjöf.
Magnús er vélaverkfræðingur með framhaldsmenntun í efnisvísindum en jafnframt með sveinspróf í vélvirkjun.
Magnús er kvæntur Kristrúnu Guðbergsdóttur meinatækni hjá Ísl. erfðagreiningu og eiga þau 3 börn.
almenna.is