Fréttir
13. janúar 2012
Fréttir frá Anda í Noregi
Miðvikudaginn 11.janúar var sprengd stærsta sprengingin
til þessa í verkinu í Anda í Noregi.
Losaðir voru um 18.000 rúmmetrar af bergi í einni sprengingu.
Á myndunum má sjá svæðið fyrir

og eftir sprenginguna

Til að setja hlutina í samhengi þá er stór gámur (40 feta gámur) 67 rúmmetrar. Efnismagnið jafngildir því um 270 gámum.
Hlutverk AV er í umsjón Sveinbjörns Steingrímssonar en hann hefur tækni- og fjárhagseftirlit með verkinu ásamt eftirliti með öryggismálum skv. norskum öryggisreglugerðum.
almenna.is