Fréttir

25. apríl 2000

Fráveitukerfi í Njarðvík

18. apríl síðastliðinn var boðin út bygging og allur frágangur skolphreinsistöðvar við Bolafót í Njarðvík (Reykjanesbæ). Hreinsistöðin er hluti af stærra verki, Fráveitukerfi í Njarðvík, en hönnun á því hefur staðið yfir með hléum frá því í byrjun árs 1997. Nú þegar hefur verið byggt sniðræsi á Fitjum (Fitjaræsi), sem tengist NAS ræsi frá herstöðinni á Miðnesheiði. Við fyrirhugaða hreinsistöð hefur verið byggður tengibrunnur fyrir Fitjaræsi, sandgildru- og yfirfallsbrunnur fyrir skolp frá Ytri Njarðvík og tengibrunnur fyrir yfirfallsvatn. Sniðræsi, dælustöð og yfirfallsbrunnur í Innri Njarðvík verður boðið út í júní næstkomandi. Reiknað er með að fráveitukerfið verði tekið í notkun í byrjun árs 2002.

Forhönnun og fyrirkomulagshönnun hreinsistöðvarinnar var unnin af Almennu verkfræðistöðinni og í framhaldi af því sá Av um útboð á dælum og vélbúnaði. Auk þess annaðist Av hönnun málmhluta og lagna og gerði útboðsgögn fyrir þá verkþætti. Verkfræðistofan Hnit hannar sniðræsi og útræsi í fráveitukerfinu og annast burðarvirkishönnun. Aðalhönnuður er Teiknistofan Örk, en raflagnahönnuður er verkfræðistofan Rafteikning.

Hreinsistöðvar af þeirri gerð sem byggð verður í Njarðvík eru algengar sem forhreinsistöðvar fyrir fullnaðarhreinsun á skolpi í landi ef viðtaki er þess eðlis að niðurbrot lífrænna efna og eyðing gerla geti ekki farið þar fram án þess að skaða lífríki og hafa mengandi áhrif. Þar sem aðstæður eru svipaðar og í sjónum út af Ytri Njarðvík er algengt (t.d. í Noregi) að grófhreinsa frárennslið í landi og láta viðtakann síðan ljúka hreinsuninni. Það er hins vegar ekki gert nema að fyrir liggi nákvæmar athuganir á því hvernig dreifing verður í sjónum og hvernig efnasamsetning og gerlasamsetning er í frárennslinu. Hreinsiaðferðin er einföld, yfirleitt ódýrari í framkvæmd en með fullnaðarhreinsun í landi og alltaf ódýrari í rekstri. Nú þegar eru þannig hreinsistöðvar í rekstri á Íslandi, m.a. hreinsistöð við Ánanaust í Reykjavík, en Av var þar stór þáttakandi í hönnun og eftirliti.

Hreinsistöðinni var fyrst ætlaður staður í Innri Njarðvík nálægt þeim stað þar sem dælustöð verður, en við nánari skoðun á kostnaði og aðstæðum í landi og utan strandar var staðsetningunni breytt og hreinsistöðinni valinn staður við Bolafót. Grófhreinsun á frárennslinu og dæling á því um 800 m út fyrir ströndina frá Kirkjuvík er fullnægjandi fyrir þær kröfur sem settar eru í íslenskri mengunarvarnarreglugerð til þess að halda bæði sjónum og ströndinni innan mengunarmarka af völdum frárennslisins.