Fréttir

05. ágúst 2010

Flotbryggjur í Fjarðarbyggð

Almenna verkfræðistofan hefur að undanförnu unnið með Vélaverkstæði G. Skúlasonar á Neskaupsstað við framleiðslu á flotbryggjum fyrir Hafnarsjóð Fjarðarbyggðar.  Bryggjurnar eru úr járnbentri steinsteypu með frauðplastkjarna og bætast við núverandi smábátahafnir í Fjarðarbyggð.  Vélaverkstæðið sér um framleiðslu en Almenna hefur séð um hönnun burðarvirkis og innsteyptra hluta ásamt skilgreiningu á steypu.  Framleiða á fjórar bryggjur sem allar eru þriggja metra breiðar og tuttugu metra langar. Heildar þyngd hverrar bryggju er um 32 tonn.  
Bryggjurnar eru íslensk framleiðsla sem einmitt ber að styrkja á tímum sem þessum.