Fréttir

04. desember 2002

Flatarskóli - Framkvæmdaeftirlit

Almennu verkfræðistofunni hf. hefur verið falið að sjá um framkvæmdaeftirlit með viðbyggingu Flatarskóla í Garðabæ. Verkkaupi er Bæjarsjóður Garðabæjar. og hófst verkið í júní 2002.

Viðbyggingin er á tveimur hæðum og gerð úr forsteyptum einingum. Burðarvirki þaksins er ýmist úr límtré eða stólað á steypta plötu. Heildarflatarmál viðbyggingarinnar er um 2270 m². Flatarmál neðri hæðar er um 1270 m² og efri hæðar um 1000 m². Auk þess eru fyrirhugaðar breytingar á um 300-400 m² í núverandi byggingu vegna viðbyggingarinnar og tenginga við hana.

Aðalhönnuður viðbyggingarinnar er Einar Ingimarsson arkitekt og aðrir ráðgjafar eru Ráðgjöf verkfræðiþjónusta, VSÓ og VSB.

Verkið hefur verið boðið út í þremur áfögum. Verktaki með jarðvinnu var Dráttarbílar, verktaki með reisningu og lokun húss er Loftorka og verktaki með frágangi innanhúss er Markhús ehf. Frágangur lóðar verður boðinn út síðar.

Áætlað er að taka efri hæð viðbyggingarinnar í notkun í júní 2003 og neðri hæðina í júlí 2003.
Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður verði um 400 milljónir.