Fréttir

13. nóvember 2003

Fjölbreytt starf STAV á haustmánuðum

Starfsmannafélag AV öðru nafni STAV hefur á síðustu misserum staðið fyrir ýmsum ferðum og uppátækjum fyrir félagsmenn. Má þar nefna jeppaferð og rauðvínssmökkun. Eins er í uppsiglingu gönguferð á Grænudyngju á Reykjanesi.

 

Í byrjun október héldu vaskir menn og konur í hina árlegu jeppaferð STAV. Fjórir jeppar fóru með 11 manns og var stefnan tekin á Laka hjá Lakagígum. Nálægt Vík var staldrað við í Kaldrananesi hjá Pálma, fyrrverandi starfsmanni og hluthafa AV, og Elsu konu hans en þau helga sig nú uppbyggingu bæjarins. Áfram var haldið, ekið norður frá Hunkubökkum og áð við Fagrafoss en þar var tækifærið notað og brotinn dempari fjarlægður. Frá Fagrafossi var svo ekið upp í Blágil og eitthvað af farangrinum skutlað inn í skálann og að því búnu haldið áfram. Gengið var á Laka og voru ferðalangar fræddir um kennileiti og jarðfræði svæðisins. Á leiðinni til náttstaðar í Blágili var litið við í Tjarnargíg, einum af gígum Lakagíga. Að morgni var slæmt skyggni á svæðinu og því haldið niður á láglendið en þar var stoppað og gengið upp að Fjaðrárgili. Að því búnu var haldið heim á leið en varð Öldufellsleið fyrir valinu með viðkomu við Hólmsárfoss.

 

Í lok Október var svo haldin rauðvínssmökkun á vegum STAV þegar félagsmenn kvöddu sumarið og fögnuðu vetri. Þar fræddi Þorri Hringsson misvínfróða starfsmenn AV um undirstöður rauðvínssmökkunar, mismundandi þrúgur, geymslu og meðhöndlun rauðvíns svo fátt eitt sé nefnt.