Fréttir
Endurvígsla Reykjavíkurflugvallar
Föstudaginn 1. nóvember var Reykjavíkur- flugvöllur formlega tekinn í notkun að loknum viðamiklum endurbótum á honum. Efnt var til móttöku þar sem samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, afhjúpaði hnitastein flugvallarins en hann stendur við Flugstjórnarmiðstöðina. Á hann rituð staðsetning hans í lengdar- og breiddargráðum og að Reykjavíkurflugvöllur sé vagga flugs á Íslandi og hann hafi verið endurbyggður 1999 – 2002.
Almenna verkfræðistofan sá um undirbúnings- rannsóknir, áætlanagerð og hönnun endurbótanna. Tvær aðalflugbrautirnar voru endurbyggðar niður á fastan botn, en gert við þá þriðju, auk þess sem byggð var ný akstursbraut. Afvötningarkerfi, ljósabúnaður og merkingar voru endurnýjaðar.
Undirbúningsvinna hófst árið 1993, en framkvæmdum lauk nú í haust.
Hvað flugbrautirnar varða hefur öryggi flugs um Reykjavíkurflugvöll aukist til mikilla muna við þessa framkvæmd.
almenna.is