Fréttir
Eftirlitsverkefni á Akranesi
Mikil uppbygging hefur verið á Akranesi og nágrenni að undanförnu. Skrifstofa Almennu verkfræðistofunnar hf. á Akranesi hefur tekið fullan þátt í þeirri uppbyggingu og sinnt eftirliti með gatnagerð og öllum veitulögnum í nýjum íbúðar- og iðnaðarhverfum síðustu árin.
Um þessar mundir sinna starfsmenn skrifstofunnar þremur stórum eftirlits-verkefnum undir stjórn Lúðvíks Davíðs Björnssonar. Heildar verktakakostnaður við þessi þrjú verk er 360 mkr. Verkefnin eru:
1. Skógarhverfi 1. áfangi: Blönduð íbúðabyggð, 272 íbúðir-sérbýlishúsalóðir til helminga. Áætluð verklok eru 15. febrúar 2007. Verktakakostnaður er 190 mkr. og helstu magntölur eru:
• Gröftur 65.000 m3
• Fylling 79.000 m3
• Lagnir 46.000 m
2. Smiðjuvellir: Iðnaðar og þjónustu-hverfi. Áætluð verklok eru 30. janúar 2007. Verktakakostnaður er 75 mkr. og helstu magntölur eru:
• Gröftur 19.000 m3
• Fylling 21.000 m3
• Lagnir 8.000 m
3. Krossland 1. áfangi: Blönduð íbúða-byggð, 124 íbúðir - Áætluð verklok eru 30. janúar 2007. Verktakakostnaður er 95 mkr og helstu magntölur eru:
• Gröftur 24.000 m3
• Fylling 30.000 m3
• Lagnir 15.000 m
Ljóst er að áframhald verður á
uppbyggingu og hafa verkkaupar þegar
farið þess á leit við Akranes skrifstofu að starfsmenn þess sinni verkeftirliti í næstu áföngum.
almenna.is