Fréttir
Byggingardagar 2000
Byggingardagar 2000 voru haldnir helgina 12.-14. maí 2000 í Laugardalshöll og var yfirskrift sýningarinnar Hús og Garðar. Það voru Samtök iðnaðarins sem stóðu að sýningunni og var AV meðal þátttakenda. Þarna voru helstu nýjungar byggingariðnaðarins til sýnist og var sýningin ágætlega sótt. AV var með bás er sýndi yfirlit yfir eðli verkefna stofunnar og þeirra sviða er stofan leggur áherslu á. Starfsmenn stofunnar stóðu vaktina og voru ötulir að kynna starfsemi stofunnar og fræða gesti um verkefni og sögu AV. Einnig var Innivist ehf., sem er að hálfu í eigu AV, með kynningu á starfsemi sinni. Þar voru til sýnis mælitæki er mæla ástand innilofts í byggingum, þ.e.a.s. mæla m. a. hitaástand, raka, trekk, ferskleika innilofts, styrk koltvíoxíðs, rafsegulsvið, hljóðstig, loftflæði um ristar o.fl. Einnig var til sýnis fullkomin stokkasjá sem skoðar ástand inni í loftstokkum loftræsikerfa. Einnig var þrívíddar myndband af Hreinsistöðinni við Klettagarða sýnd á breiðtjaldi á meðan á sýningunni stóð. Allar þrívíddarteikningar af stöðinni eru teiknaðar á AV og er þetta vaxandi svið innan stofunnar. Það er skoðun starfsmanna AV að vel hafi tekist með sýninguna og vonandi verði framhald af þátttöku AV á byggingardögum.
almenna.is