Fréttir
Bryggjuhverfi í Kópavogi
Strönd Kópavogs er fullbyggð, en stórar landfyllingar hafa verið gerðar yst á Kársnesinu fyrir iðnað, vörugeymslur og hafnarstarfsemi. Innar á nesinu Fossvogsmegin er strjál byggð gamals atvinnuhúsnæðis og neðan við það er fjara sem öll er hreyfð á um 500m kafla. Hugmyndin er að gera landfyllingu utan við þennan kafla fjörunnar í stórum boga, sem nær mest 150m út í voginn og byggja þar 460 íbúðir í 3 til 5 hæða fjölbýli sem að 3/4 hlutum stendur á fyllingunni.
Landið hefur þann mikla kost að útsýni þaðan er til norðurs yfir Fossvoginn til Öskjuhlíðar ásamt yfir fjallahring borgarinnar. Veður er milt við voginn. Aðaláhersla er lögð á að nýta til fulls útsýnið og um leið mynda skjólgóða garða í suðurátt og er það gert með reglulegri strandbyggð, sem fylgir boga fyllingarinnar á mjög einfaldan hátt. Þá tekur við óregluleg byggð í kringum smábátahöfn. Er hún hugsuð sem tengill milli strandbyggðar og íbúðarbyggðar innar í voginum. Austan hafnar er grasi vaxinn tangi sem er verndað land.
Almenna verkfræðistofan hf. sinnir verkefnastjórn, umsjón og eftirliti með framkvæmdunum fyrir hönd Björgun og Bygg sf. Framkvæmdir eru hafnar og eru verklok áætluð í lok ársins 2010. Unnið er við 1. áfanga núna. þ.e.a.s. gerð smábátahafnar og fyrsta hluta landfyllinga. Hönnun landfyllinga og varnargarða er í höndum VST en Hönnun sér um að hanna götur og lagnir.
almenna.is