Fréttir

14. desember 2006

BUGL fær styrk

Almenna verkfræðistofan hf. afhenti BUGL, Barna- og unglingageðdeild Landspítala-háskólasjúkrahúss, 350.000 króna styrk nú á aðventunni, en félagið hefur á undanförnum árum lagt þörfum og góðum málefninu lið með fjárframlögum um jólaleytið.  Fjárframlagið verður notað til að kaupa húsbúnað í nýja íbúð fyrir aðstandendur skjólstæðinga BUGL, sem fyrirhugað er að kaupa í nágrenni við deildina.  

Helgi Valdimarsson framkvæmdastjóri Almennu verkfræðistofunnar afhenti Lindu Kristmundsdóttur, deildarstjóra BUGL og Guðríði Þorleifsdóttur, verkefnisstjóra styrkinn fyrir hönd fyrirtækisins.