Fréttir

02. september 2010

Af vel unnu verki á Akranesi

Almennu verkfræðistofunni var falið að hanna endurbætur á þaki á eina af álmum Grundarskóla á Akranesi. Framkvæmdastofa Akraneskaupstaðar sá um framkvæmd verksins sem unnið var í sumar og lauk nýlega. Þakjárn var fjarlægt ásamt þakpappa og nýr þakdúkur settur á þakið. Nýja þakjárnið var neglt á lektur, þakgluggar aflagðir og þaktúður endurnýjaðar. Einnig var skipt um stálklæðningu á veggjum og rennur og þakniðurföll endurnýjuð.

Verkið var unnið af heimamönnum á Akranesi og verður að hrósa þeim fyrir sérstaklega vönduð vinnubrögð og í heild vel unnið verk sem er til fyrirmyndar.