Fréttir
AV semur við Vottun hf. um vottun gæðakerfis
Stjórnendum AV hefur lengi verið ljós sá ávinningur sem fæst af skilvirku gæðakerfi, bæði fyrir viðskiptavini og fyrirtækið sjálft. Þessu til stuðnings má nefna að fyrstu skráðu verklagsreglur AV eru frá árinu 1972, ári eftir að fyrirtækið var stofnað, en árið 1996 var gefin út gæðahandbók sem náði til mikils hluta starfsemi AV.
Haustið 2002 var ákveðið að þróa gæðakerfið að fullu í samræmi við alþjóðlega gæðastaðalinn ISO 9001-2000 og að fá kerfið vottað. Megin markmið kerfisins er samræming á vinnuferlum og markvisst innra eftirlit sem skilar sér fyrst og fremst í enn betri þjónustu við viðskiptavini stofunnar. Gerður hefur verið samningur við Vottun hf. um vottun kerfisins. Vottun hf. hefur séð um að votta fjölda íslenskra fyrirtækja samkvæmt ISO 9001, en þar má nefna Bakkavör Ísland, Össur, Skýrr, Sementsverksmiðjuna og Orkuveitu Reykjavíkur.
Ari Arnalds hefur verið ráðinn sem gæðastjóri AV og er hlutverk hans að stýra þróun gæðakerfisins fram að vottun. Ari er vel heima í gæðamálum en hann var framkvæmdastjóri Verk- og kerfisfræðistofunnar (VKS) til ársins 2000. VKS fékk vottun, fyrir alla starfsemi sína, samkvæmt ISO 9001 árið 1995 og var þannig fyrst íslenskra ráðgjafafyrirtækja til að fá slíka vottun, en VKS hlaut einnig Íslensku gæðaverðlaunin árið 1999.
Gæðakerfið verður sett upp miðlægt á innra-neti AV þannig að allir starfsmenn hafa ávallt aðgang að nýjustu útgáfu kerfisins.
almenna.is