Fréttir
AV og samstarfsaðilar hljóta bestu hæfniseinkunn í útboði Landsvirkjunar
Almenna verkfræðistofan hf og samstarfsaðilar hennar hlutu bestu hæfniseinkunn í nýlegu útboði Landsvirkjunar á eftirliti með byggingu stöðvarhúss Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal. AV er því á tvennan hátt orðinn þátttakandi í þessari „stærstu framkvæmd Íslandssögunnar,“ annars vegar sem hönnuður að ýmsum verkþáttum í virkjuninni og hins vegar sem eftirlitsaðili með áðurnefndu verki.
Mánudaginn 7. júlí voru opnuð tilboð í eftirlit með stöðvarhúsi við Kárahnjúkavirkjun. AV og fjögur önnur fyrirtæki buðu saman í verkið og urðu hlutskörpust. Verkið felur í sér eftirlit með byggingu á stöðvarhúsi og tengdum mannvirkjum.
Eftirtaldir hópar buðu í verkið:
-
Almenna verkfræðistofan, Lahmeyer Intl., Hönnun, VSÓ og Rafhönnun.
-
Mott MacDonald, Hnit, Línuhönnun, Fjarhitun, Sweco, Norconsult, Coyne et Bellier, Acres Intl.
-
MWH Americas, Statkraft, Fjölhönnun, Palmi Associates.
Ásamt því að hljóta bestu hæfniseinkunn hlaut hópur 1. bestu heildareinkunn fyrir sitt tilboð. Tilboðsfjárhæð hópsins var 586,407,749 ísk og hefur hópnum verið falið að annast eftirlitið.
Áætlað er að vinnan hefjist í september á þessu ári og ljúki í september 2007.
almenna.is