Fréttir
Þrír sigrar á EM í brids
Íslenska bridslandsliðið vann alla leiki sína þrjá á Evrópumótinu, sem nú stendur yfir í Oostende í Belgíu. Ísland vann fyrst Finnland, 19:11, þá Króatíu, 20:10 og loks Litháen, 23:7.
Ísland er efst í A-riðli með 317 stig. Ítalar hafa 308 stig og Frakkar 287. Í B-riðli eru Svíar efstir með 309 stig, Pólverjar hafa 297 stig og Ísraelsmenn 290.
Riðlakeppninni lýkur í dag með þremur leikjum en þá spilar Ísland við Tyrkland, Serbíu og Líbanon. Níu efstu sveitirnar úr hvorum riðli halda áfram í úrslitakeppni þar sem liðin taka með sér stigin úr leikjunum við þau lið sem komast áfram og spila við sveitirnar úr hinum riðlinum.
Þorlákur Jónsson, verkfræðingur hjá Almennu verkfræðistofunni, er í Belgíu, en hann hefur verið einn af fremstu bridsspilurum landsins í nokkur ár. Við óskum íslenska bridslandsliðinu áframhaldandi velgengni á mótinu.
almenna.is