Suðurlandsskjálfti 2008

Verkefni
Suðurlandsskjálfti 29. maí 2008 - Tjónamat.

Verkkaupi
Viðlagatrygging.
Lýsing verkefnis
Þann 29. maí varð jarðskjálfti á Suðurlandi sem átti upptök í Ölfushreppi um 8 km. norðvestur af Selfossi. Vægisstærð hans var 6,3. Miklar skemmdir urðu á innbúum, lausafé og fasteignum á stóru svæði við jarðskjálftann og fjöldi tjónstilkynninga verið skráður hjá Viðlagatryggingu Íslands. Viðlagatrygging kvaddi til Almennu verkfræðistofuna og VST-Rafteikningu til að stýra tjónamati á þeim svæðum þar sem skemmdir urðu á fasteignum og öðrum mannvirkjum..
Staðsetning 
Ölfushreppur á Suðurlandi.
Þjónusta AV
AV hefur séð um stjórnun matsstarfa í Ölfusi og Hveragerði, á sumarhúsum, á höfuðborgarsvæðinu og víðar. AV hefur verið með um 20-24 matsmenn starfandi á framangreindum svæðum en alls hafa komið um 35 manns að þessu verkefni af hálfu AV..
Verktími
Maí 2008 - ?.