Skarfabakki

Verkefni
Skarfabakki - Hafnarbakki - Þjónustubygging o.fl.

Verkkaupi
Faxaflóahafnir sf.
Lýsing verkefnis
Bygging hafnarmannvirkja og landfyllinga á Klettasvæði í Sundahöfn. Um er að ræða varnargarð og viðlegumannvirki fyrir stór skip, Skarfagarð og Skarfabakka og nær verkið til landfyllinga, ferginga, brimvarnargarðs, dýpkun Sundahafnar, lagna á svæðinu, bygging þjónustubyggingar og mastra o.fl. Skarfagarður er 350 m. langur skjólgarður og Skarfabakki er 500 m. langur viðlegukantur.
Staðsetning
Klettasvæðið liggur austur af Laugarnesinu á móts við Viðey og er nyrsti hluti hafnarsvæðis Sundahafnar.
Þjónusta AV
Aðalráðgjafi Faxaflóahafna sf., ráðgjöf m.a. á sviði rannsókna, jarðtækni, burðarþols, fráveitu- og vatnslagna, gerð útboðsgagna, kostnaðargreininga og umsjón með ýmsum framkvæmdum á svæðinu.
Verktími
2003-2007.