Kárahnjúkavirkjun - Ufsarstífla og Hraunaveita
Verkefni
Ufsarstífla og Hraunaveita eru hluti Kárahnjúkavirkjunar og fela í sér veitu Jökulsár í Fljótsdal auk fjögurra áa á Múla og Hraunum í aðrennslisgöng virkjunarinnar.
Verkkaupi
Landsvirkjun.
Lýsing verkefnis
Jökulsá í Fljótsdal er stífluð og Ufsarlón er myndað en frá því er veitt í aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar. Kelduá verður stífluð og vatni veitt til Jökulsár í Fljótsdal um jarðgöng. Í Grjótá verður stíflað og vatni veitt um jarðgöng til Kelduár. Innri-Sauðá verður stífluð og vatni veitt með skurði til Grjótár. Þá verður útrennsli Sauðárvatns stíflað og veitt yfir í Innri-Sauðá með skurði.
Staðsetning
Við Eyjabakkajökul á Austurlandi.
Þjónusta AV
Hönnun stíflumannvirkja, burðarvirkja og lokubúnaðar.
Verktími
2005-2008.
- Búrfellsvirkjun
- Dælu- og hreinsistöð Hraunsvík
- Hágöngumiðlun
- Hólmsárvirkjun
- Hreinsistöð Njarðvík
- Hreinsistöðin á Akranesi
- Hreinsistöðin við Ánanaust
- Hreinisstöðin við Klettagarða
- Kárahnjúkavirkjun
- Norðlingaölduveita
- Núpsvirkjun
- OR endurnýjun veitukerfa
- Skaftárveita
- Skaftárvirkjun
- Tengivirki Fljótsdal
- Ufsarstifla og Hraunaveita
- Vatnsfellsvirkjun
- Vatnsveita Grundarfjarðar
almenna.is