Skaftárvirkjun
Verkefni
Frumhönnun 125 MW vatnsaflsvirkjunar í Skaftá í Skaftártungu.
Verkkaupi
Landsvirkjun og RARIK.
Lýsing verkefnis
Skaftárvirkjun nýtir fall í Skaftá frá Rótarhólma skammt neðan Hólaskjóls niður fyrir Skaftárdal, nánar tiltekið að bænum Búland. Skaftá er veitt yfir í Þorvaldsaura um 3,1 km. löng veitugöng þar sem inntakslón virkjunar er myndað með því að stífla Rásgljúfur með um 68 m. hárri stíflu. Tungufljót fellur sömuleiðis í inntakslónið. Stöðvarhúsið er í neðanjarðarhvelfingu í Réttarfelli. Um 165 m. há fallgöng liggja á milli inntaks virkjunar og stöðvarhússins og frá stöðvarhúsinu streymir vatnið um 5,8 km. löng frárennslisgöng.
Staðsetning
Í Skaftártungu.
Þjónusta AV
Samhliða frumhönnun mannvirkja var jarðfræði virkjanasvæðis kortlögð og mögulegir efnistökustaðir kannaðir. Einnig var aur- og ísburður Skaftár rannsakaður.
Verktími
2002-2005.
- Búrfellsvirkjun
- Dælu- og hreinsistöð Hraunsvík
- Hágöngumiðlun
- Hólmsárvirkjun
- Hreinsistöð Njarðvík
- Hreinsistöðin á Akranesi
- Hreinsistöðin við Ánanaust
- Hreinisstöðin við Klettagarða
- Kárahnjúkavirkjun
- Norðlingaölduveita
- Núpsvirkjun
- OR endurnýjun veitukerfa
- Skaftárveita
- Skaftárvirkjun
- Tengivirki Fljótsdal
- Ufsarstifla og Hraunaveita
- Vatnsfellsvirkjun
- Vatnsveita Grundarfjarðar
almenna.is