Kárahnjúkavirkjun
Verkefni
Kárahnjúkavirkjun - vatnsaflsvirkjun byggð til að þjóna 340.000 tonna álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði.
Verkkaupi
Landsvirkjun.
Lýsing verkefnis
Heildarverkið samanstendur af 190 m háum vegg úr steyptri þéttikápu (8,5 milljón rúmmetra) og 730 metra breiðum, fyrir stífluna að Kárahnjúkum, ásamt tveimur minni jarðvegsstíflum, Desjarárstíflu sem er 60 m há og 1100 m breið, og Sauðarárdalsstíflusem er 25 m há og 1100 m breið. Allar stíflurnar safna saman vatni frá Vatnajökli og mynda Hálslón sem er í 625 m. hæð yfir sjó, það nær yfir 57 ferkílómetra og er 2.100 Gl. Þaðan er síðan vatninu veitt um 400 m löng fallgöng niður í stöðvarhúsið sem hefur 6x115 MW túrbínur, stöðvarhúsið er 800 metra inn í bjarginu. Vatninu er síðan veitt úr stöðvarhúsinu um frárennslisgöng sem opnast út í Fljótsdal, þar sem grafinn er frárennslisskurður út í farveg Jökulsár í Fljótsdal.
Staðsetning
Austurland - Fljótsdalur.
Þjónusta AV
Almenna vann með tveimur alþjóðlegum vinnuhópum að þessu verki, KSJV og KEJV ásamt einum innlendum UHJV. KSJV bar ábyrgð á samningsgerð og hafði eftirlit með öllum burðarþols-, rafmagns- og vélbúnaði í stöðvarhúsinu og kringum það. Hlutverk AV innan KEJV var hönnun Sauðárdalsstíflu norðan Kárahjnúkavirkjunar. Innan UHJV var hlutverk AV burðarþolshönnun á steyptum mannvirkjum svo sem botnlokum og frárennsli, sem og vélahönnun á botnlokubúnaði.
Verktími
2003-2008.
- Búrfellsvirkjun
- Dælu- og hreinsistöð Hraunsvík
- Hágöngumiðlun
- Hólmsárvirkjun
- Hreinsistöð Njarðvík
- Hreinsistöðin á Akranesi
- Hreinsistöðin við Ánanaust
- Hreinisstöðin við Klettagarða
- Kárahnjúkavirkjun
- Norðlingaölduveita
- Núpsvirkjun
- OR endurnýjun veitukerfa
- Skaftárveita
- Skaftárvirkjun
- Tengivirki Fljótsdal
- Ufsarstifla og Hraunaveita
- Vatnsfellsvirkjun
- Vatnsveita Grundarfjarðar
almenna.is