Umhverfis- og öryggisstjórnun
Umhverfismál, sem og réttindi og aðbúnaður starfsmanna, verður æ veigameiri þáttur í umræðunni, svo stór að ekki verður lengur litið fram hjá þeim málaflokki við stefnumörkun í rekstri fyrirtækja almennt. Opinbert regluverk á þessu sviði er líka viðamikið.
Með umhverfis- og öryggisstjórnun er á kerfisbundin hátt komið í veg fyrir mistök og tjón sem skaðað geta heilsu starfsmanna, umhverfi fyrirtækisins, ímynd og viðskiptavild.
Almenna verkfræðistofan býður aðstoð sérfræðinga við að koma á umhverfis- og öryggisstjórnun í fyrirtækjum. Umfang er sniðið að vilja og þörfum hvers og eins. AV er þjónustuaðili á sviði vinnuverndar og öryggismála og býður uppá heildstæða þjónustu á því sviði.
almenna.is