Umferðarskipulag og hönnun vega

Almenna verkfræðistofan veitir ráðgjöf við umferðarskipulag, allt frá stefnumörkun í skipulagsáætlun niður í deiliskipulag einstakra samgöngumannvirkja. Sem dæmi um nýleg verkefni má nefna umferðarskipulag Reykjanesbrautar í Kópavogi (Kópavogsbær og Vegagerðin 2007-2008) og Umferðarskipulag Hálsabrautar (Reykjavíkurborg, 2008).

Enn fremur er boðið upp á þjónustu við hönnun vega og gatna. Sem dæmi um nýleg verkefni má nefna frumdrög að tvöföldun Vesturlandsvegar (Vegagerðin 2008-2009), verkhönnun Hlíðarfótar (Reykjavíkurborg 2008-2009), hönnun gatna í athafnahverfi á Tungumelum í Mosfellsbæ (Ístak 2006-2009), úttekt á stofnvegakerfi á höfuðborgarsvæðinu (Vegagerðin 2007). Dæmi um eldri verkefni eru hönnun mislægra vegamóta Vesturlandsvegar við Víkurveg og Suðurlandsveg.