BREEAM, EarthCheck og grænt bókhald
BREEAM (Building Research Establishment Environmental Assessment Method) er bresk aðferð sem er ætlað að greina og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum bygginga. Helstu markmið með notkun kerfisins eru að stuðla að byggingu vistvænna, heilnæmra og öruggra bygginga, draga úr rekstrarkostnaði og almennt bæta vinnubrögð við hönnun, framkvæmd og rekstur bygginga. Á Almennu verkfræðistofunni starfa löggiltir matsmenn fyrir BREEAM.
Ferðaþjónustufyrirtæki sem leggja áherslu á sjálfbæran rekstur geta sótt um að merkja sig með EarthCheck (Green Globe) merkinu. Til að öðlast vottun eru gerðar kröfur um að mæta ákveðnum viðmiðum í umhverfismálum. Aðalmarkmiðin með vottuninni eru að bæta frammistöðu fyrirtækisins í umhverfismálum, gera reksturinn hagkvæmari og vinnustaðinn betri. Almenna verkfræðistofan hefur aflað sér réttinda til að vera vottunaraðili fyrir EarthCheck (Green Globe) á Íslandi.
Í grænu bókhaldi eru settar fram upplýsingar um hvernig umhverfismálum er háttað í viðkomandi starfsemi. Upplýsingarnar má svo nýta til að marka stefnu í umhverfismálum og bæta reksturinn. Almenna verkfræðistofan hefur frá 2007 tekið saman grænt bókhald fyrir eigin starfsemi en veitir einnig öðrum fyrirtækjum ráðgjöf um málefnið.
almenna.is