Aðstoð við embætti byggingarfulltrúa
Starfsmenn Almennu verkfræðistofunnar hafa um árabil aðstoðað byggingarfulltrúa sveitarfélaga við embættisstörf. Fyrir sveitarfélög getur það verið góður valkostur að fá aðkeypta aðstoð, þegar umfangsmikil uppbygging á sér stað, eða til afleysinga fyrir starfandi byggingarfulltrúa sveitarfélagsins.
Starfsmenn Almennu verkfræðistofunnar hafa aðstoðað byggingarfulltrúa Garðabæjar, Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og Mosfellsbæjar við yfirferð teikninga, úttektir og önnur hefðbundin störf byggingarfulltrúa. Í mjög stórum framkvæmdum hafa sum sveitarfélög farið þá leið að hafa sérstakan byggingarfulltrúa sem heldur utan um öll byggingarfulltrúastörf vegna viðkomandi framkvæmdar.
Starfsmaður Almennu verkfræðistofunnar var sérstakur byggingarfulltrúi fyrir Hvalfjarðarsveit við byggingu Norðuráls á Grundartanga á árunum 1997 til 2009. Sama fyrirkomulagi var komið á við byggingu Fjarðaáls á Reyðarfirði á árunum 2004 til 2009.
almenna.is