Umhverfi og skipulag

Sviðsstjóri
Þórarinn Hjaltason
thorarinnalmenna.is  

Almenna er verkfræðistofa sem veitir alhliða ráðgjöf  í umhverfis-, samgöngu- og skipulagsmálum.  Helstu verkefni á sviði umhverfismála eru mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana, grunnvatnsrannsóknir, hættumat vegna ofanflóða, mengunarrannsóknir og skipulagning hreinsunar og frágangs, jarðfræðiráðgjöf vegna mannvirkjagerðar í lausum jarðlögum og bergi, umhverfis- og öryggisstjórnun, vottun á vistvænni hönnun (BREEAM), vatnamælingar, viðhaldsvottun Earth Check (Green Globe) og grænt bókhald.

Helstu verkefni á sviði samgöngumála eru umferðarskipulag, hönnun vega og gatna, úttekt á umferðaröryggi og tillögur um úrbætur, útreikningar á umferðarhávaða og hönnun flugvalla.  Helstu verkefni á sviði skipulagsmála er ráðgjöf við svæðis-, aðal- og deiliskipulag bæjar- og sveitarfélaga og skipulag þjóðgarða. 

Auk þess sér Umhverfis- og skipulagssvið um landmælingar og kortagerð og aðstoðar embætti byggingarfulltrúa bæjar- og sveitarfélaga.