Störf í boði

Verk- og eða tæknifræðingar óskast til starfa
Vegna aukinna verkefna hérlendis og í Noregi óskar Almenna verkfræðistofan eftir að ráða öfluga verk- eða tæknifræðinga til starfa á eftirfarandi sviðum:

JARÐTÆKNI
Hafnargerð, vegagerð, vatnsaflsvirkjanir,
undirstöður bygginga o.fl.

BURÐARVIRKI
Byggingar, iðnaður og önnur mannvirki.
Hönnun í BIM umhverfi.

LAGNIR OG LOFTRÆSING
Byggingar, iðnaður og önnur mannvirki.
Hönnun í BIM umhverfi.

BRUNATÆKNI
Byggingar, iðnaður og önnur mannvirki.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í verkfræði/tæknifræði
• Reynsla af sambærilegum störfum
• Færni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæði, metnaður og frumkvæði í starfi
• Norðurlandamál er kostur

Framundan eru fjölbreytt og krefjandi verkefni, hérlendis og í Noregi.  Óskað er eftir jákvæðum einstaklingum, sem hafa hæfni í mannlegum samskiptum og sýna sjálfstæði, metnað og frumkvæði í starfi. 

Umsóknir óskast sendar á alda@almenna.is fyrir 1. desember 2011.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum er svarað.

Sækja auglýsingu

Almenna verkfræðistofan er sífellt í leit að hæfileikaríku fólki sem hefur áhuga á að starfa hjá traustu fyrirtæki í skemmtilegu umhverfi.  Árangur Almennu verkfræðistofunnar er undir reyndu og hæfileikaríku fólki kominn. Við leggjum ríka áherslu á að laða að okkur hæft starfsfólk sem er tilbúið að leggja sig fram og sýnir frumkvæði.  Hafir þú áhuga á að starfa í lifandi umhverfi með áhugasömu fólki er þér velkomið að senda inn almenna umsókn. 

Vinsamlegast sendið ferilskrá með sem viðhengi.

Nafn
Sími
Netfang
Viðhengi
Skilaboð
Ekki breyta þessu gildi:
Þessi reitur á að vera auður: