Starfsmannafélagið STAV

 
Á Almennu verkfræðistofunni er starfandi öflugt starfsmannafélag sem ber heitið STAV. Einn helsti tilgangur með starfi félagsins er að efla starfsandann innan stofunnar með því að halda uppi fjölbreyttu félagslífi fyrir starfsmenn og fjölskyldur þeirra. Meðal þeirra viðburða sem félagið stendur fyrir eru skoðunarferðir á listasöfn, leikhúsferðir, ýmiss konar gönguferðir, sjóstangveiði, skíðaferðir, skautaferðir, jeppaferðir, grillveislur, jólaglögg og keilumót. STAV tekur einnig þátt í skipulagningu á föstum liðum í starfsemi stofunnar, t.d. þegar vetri og sumri er fagnað.

Ýmis önnur félög eru starfandi innan Almennu verkfræðistofunnar, m.a. Veiðifélag starfsmanna (VFSAV) og Ungliðahreyfingin ÚLAV. STAV styrkir gjarnan starfsemi slíkra félaga og einnig annað félagslíf sem starfsmenn hafa frumkvæði að án þess að um það séu stofnuð sérstök félög. Þetta á t.d. við um golfiðkun, handavinnuferðir, knattspyrnuiðkun, hljómsveitarstarf og margt fleira.