Gildi

Þekking
Við leggjum okkur fram við að miðla þekkingu milli starfsfólks og til viðskiptavina. 
Við eflum og bætum stöðugt þekkingu okkar. Hjá okkur verður til uppspretta nýrrar þekkingar til góða fyrir starfsfólk, fyrirtækið og viðskiptavini.

Metnaður
Við leggjum okkur fram við að vera best í því sem við tökum okkur fyrir hendur. 
Sem einstaklingar og fyrirtæki viljum við ná árangri, bæði faglegum og fjárhagslegum. 
Við leitum nýrra tækifæra, setjum okkur markmið og náum þeim. Á stofunni er starfsmönnum falin ábyrgð og þeim leyft að spreyta sig og sýna fram á hæfni sína.

Áreiðanleiki
Við viljum standa undir væntingum viðskiptavina. Mikilvægt er að við stöndum við gefin loforð. Kjarninn í okkar starfi er að viðskiptavinir treysti okkur fyrir mikilvægum verkefnum og að við virðum tíma- og kostnaðarmörk.