Gæðakerfi

Almenna verkfræðistofan starfar samkvæmt vottuðu gæða- og umhverfisstjórnunarkerfi ÍST EN ISO 9001:2000 og ÍST EN ISO 14001:2004.

Hjá Almennu verkfræðistofunni er sérstakur gæðastjóri, auk þriggja manna gæðaráðs, sem annast uppbyggingu og viðhald á gæðastjórnunarkerfi fyrirtækisins, og tekur jafnframt þátt í að undirbúa og fylgja eftir gæðastjórnun í einstökum verkum.

Gæðastýring innan fyrirtækisins byggist m.a. á stjórnskipulagi þess, dreifingu á ábyrgð og skyldum og verklagsreglum sem viðhafðar eru.